Thursday, July 30, 2009

Heima hjá Heidi, Seal og fleiri celebs ..


Veit ekki með ykkur lesendur góðir ,en ég hef gaman af að sjá hvert mikil velgegni og ríkidæmi leiðir fólk þegar að vistaverum kemur.
Margir ráða misgóða arkitekta og innanhússhönnuði og útkoman er í samræmi við það .

Þessar myndir eru allar fengnar af síðu Point Click Home og sýna heimili þekktra persóna;model,söngvarar leikarar ofl. Góða skemmtun : )

Hafið það svo yndislegt um verslunarmannahelgina og farið varlega -kveðja Ágústa.




Þetta er eitt af heimilum Heidi Klum og Seal -ekki leiðinlegt hjá þeim, og eftir smá dífu í lauginni bakar Seal ..



..skonsur fyrir Heidi!


Kelsey Grammer minnir mig að þessi heiti-eða bara Frasier..


Huggulegt þarna ..


Josh Groban í líflegu eldhúsi sínu


Erfingi Hilton auðæfanna; Nicky Hilton - æ ,æ nei Nicky !

Cindy Craword býr hér -fallegt,hlýlegt .

Minnir að þessi leikkona heiti Vanessa Williams og leiki í Ugly Betty


Unglingastjarnan Miley Cyrus í herginu sínu..



og hér er skó-HERBERGIÐ hennar ; )



Rokkstjarnan Lindsay Buckingham í L.A.


Hver man ekki eftir himinn-bláeygum Lindsey Buckingham úr Fleetwood Mac?
Veit alla vega að undirrituð sat dáleidd fyrir framan kassann þegar hann söng um Diane og óskaði þess helst að geta sungið líka ..sungið hann til mín -ekki Diane ,oj !
En að öllu gamni slepptu þá býr þessi popppési bara virkilega vel enda giftur konu sem er innanhússhönnuður og ljósmyndari að mennt ,en þau kynntust fyrir 13 árum þegar hún var ráðin til að taka myndir af honum án þess að hún vissi fyrirfram hvern hún væri að fara að mynda.
Það sem er eftirtektarvert við þetta hús er að í kjallara undir bílskúr er hljóðver Lindsay's með samliggjandi aukaíbúð fyrir félagana svo þeir þurfi ekki að trufla heimilislífið þegar þeir eru við upptökur - þetta kallar maður lúxus .
Það sem heillar mig mest í þessi innliti er þó veröndin sem algert yndi ,en dæmi nú hver fyrir sig .. : ) Allar myndirnar eru frá Elle Decor














Þetta er aðeins of amerískt fyrir moi-
of mikið að gerast í gardínudeild ; )




Skemmtilegur grænmetisreitur hér

"semdu nú lag -eitthvað gott lag- eins og í gamla daga" !



hér gæti ég hugsað mér að chilla aðeins mm-hmm !


Posted by Picasa

Monday, July 27, 2009

Nokkrir góðir dagar á skrifstofunni..heima !

Þó svo að við getum kanski ekki öll fengið eins flott skrifstofuhorn eins og á fyrstu myndinni hér að neðan (úlala!) getum við örugglega oft komið okkur upp betri aðstöðu en við höldum ,þurfum bara að hugsa aðeins út fyrir rammann,setja upp nokkrar hillur fyrir ofan einfalt skrifborð, og málið er dautt - ekki satt?
Nú þegar haustið fer að nálgast og innivera eykst veit ég nákvæmlega hvað ég ætla að gera; nefnilega koma tölvunni ÚT úr svefnherberginu og gera lítið skrifstofuhorn í stofunni.(Af tveimur slæmum kostum er stofan skárri !)Vona að einhver fái innblástur af þessum myndum og láti ti skarar skríða líka -góða skemmtun ; ).Ágústa D












Takið eftir hillunni til hægri -gaman að geta raðað uppskriftabókunum sínum hér.


Góð fermetra nýting hér-frábær hugmynd














Myndir eru frá Country Home,Flickr,Decor Pad ofl.

Posted by Picasa

Tuesday, July 21, 2009

Allir út að borða !


Hér eru nokkrar hugmyndir um hvernig má leggja skemmtilega á borð undir berum himni ,en með þessu áframhaldi verða garðar á Íslandi örugglega eitthvað í líkingu við þetta í framtíðinni -ekki leiðinleg tilhugsun, hmm !
Njótið vel ,Ágústa D.








Myndir frá Country Home ,telegraph.co.uk ,Flickr.com,Country Living , Sköna Hem og An Indian Summer


Friday, July 17, 2009

These are a few of my favorite things..

Mikið er yndilslegt þegar sólin heiðrar okkur með langri viðveru eins og undanfarnar vikur : ). Hef auðvitað ekki náð að pósta neitt undanfarið en bæti nú úr með að týna til nokkra uppáhaldshluti sem ég hef fundið á á netinu undanfarna mánuði.Fystu 5 myndirnar eru af vefverslun konu sem býr í L.A. og ber hennar nafn ;HeatherBullard.com.
Hún er líka ljósmyndari og tekur mjög fallegar myndir. Kórónurnar eru búnar að vera á radarnum hjá mér undanfarið ár og gleðin var mikil þegar ég loks fann þær á vefsíðunni hennar nýlega,(hugsið jól !) .En hér eru s.s. myndir af því sem mig dag-dreymir um núna - með góðri kveðju , Ágústa.



gömul ólívu-olíudós virkar vel sem blómavasi mmm..


Þær eru littlar og líta út fyrir að vera antik ..



en eru það ekki - og það er í góðu lagi !


Hef séð soldið mikið af svona myndum..
en þessi er óvenjuleg og frábrugðin

Hörpúði á leiðinni í pósti til mín -voða franskur og flottur með sig ; )

og þessi líka (afsakið montið!)

það hlýtur að vera hægt að smíða svona bekk úr íslensku efni hmm..

..lífið gæti ekki orðið betra en í þessu hengirúmi.. einn góðan veðurdag.. í framtíðinni
..eða þessu
með gott blað..
og ómótstæðilega súkkulaðiköku..
þyrfti auðvitað eitthvað svalandi með ; )

..og smá félagsskap því mér myndi kanski leiðast eftir góða stund í þessum vellystingum!!

(Púðar eru frá Petit Coterie ,hengirúm frá The Hangout Place)