Friday, July 17, 2009

These are a few of my favorite things..

Mikið er yndilslegt þegar sólin heiðrar okkur með langri viðveru eins og undanfarnar vikur : ). Hef auðvitað ekki náð að pósta neitt undanfarið en bæti nú úr með að týna til nokkra uppáhaldshluti sem ég hef fundið á á netinu undanfarna mánuði.Fystu 5 myndirnar eru af vefverslun konu sem býr í L.A. og ber hennar nafn ;HeatherBullard.com.
Hún er líka ljósmyndari og tekur mjög fallegar myndir. Kórónurnar eru búnar að vera á radarnum hjá mér undanfarið ár og gleðin var mikil þegar ég loks fann þær á vefsíðunni hennar nýlega,(hugsið jól !) .En hér eru s.s. myndir af því sem mig dag-dreymir um núna - með góðri kveðju , Ágústa.



gömul ólívu-olíudós virkar vel sem blómavasi mmm..


Þær eru littlar og líta út fyrir að vera antik ..



en eru það ekki - og það er í góðu lagi !


Hef séð soldið mikið af svona myndum..
en þessi er óvenjuleg og frábrugðin

Hörpúði á leiðinni í pósti til mín -voða franskur og flottur með sig ; )

og þessi líka (afsakið montið!)

það hlýtur að vera hægt að smíða svona bekk úr íslensku efni hmm..

..lífið gæti ekki orðið betra en í þessu hengirúmi.. einn góðan veðurdag.. í framtíðinni
..eða þessu
með gott blað..
og ómótstæðilega súkkulaðiköku..
þyrfti auðvitað eitthvað svalandi með ; )

..og smá félagsskap því mér myndi kanski leiðast eftir góða stund í þessum vellystingum!!

(Púðar eru frá Petit Coterie ,hengirúm frá The Hangout Place)

1 comment:

Goa said...

Sæl Ágústa!
Takk fyrir kveðjuna..:) Ég bara sá hana áðan og nú er ég búin að skoða allt bloggið þitt...*Frábært*

Gaman að finna þig og ég þakka þér svo mikið fyrir falleg orð um heimilið mitt...*GLÖÐ*

Hafðu það sem best og svo bara heyrumst við..;)

Kær kveðja // Gúa...